top of page
Kynfræðsla og ráðgjöf
Kynfræðsla er ekki bara fyrir unglinga heldur skiptir máli allt okkar líf. Ég brenn fyrir bættri kynfræðslu svo að fólk geti stundað betra kynlíf, aukið lífsgæði sín og betrumbætt sambandið við sjálfan sig og aðra.
Indíana Rós býður upp á kynfræðslu og ráðgjöf fyrir ýmis fyrirtæki, stofnanir, hópa og einstaklinga. Kynfræðsluna nálgast hún með áherslu á húmor, virðingu og faglega þekkingu og hefur gert frá 2016. Hún leggur áherslu á að skapa öruggt umhverfi til að ræða viðkvæm málefni og aðlagar hún fræðslu eftir þörfum.
Hennar nálgun stuðlar að jákvæðum viðhorfum til kynlífs og kynheilbrigðis með það að markmiði að hvetja til opinnar umræðu og fræðslu sem er grundvöllur að kynheilbrigði.
Fræðsla fyrir ungmenni og starfsfólk félagsmiðstöðva eða ungmennahúsa.
Indíana Rós hefur til að mynda unnið með eða veitt fræðslu til eftirfarandi fyrirtækja, félaga eða stofnanna.
Services
bottom of page